Geðveiki handan greiningartækja?

Will sanity return enn minniFréttaMiðillinn er nú í stöðugu sambandi við geðlækna og sálfræðinga handan við móðuna miklu sem keppast við að greina stöðuna á ráðherrum, þingmönnum, sóttvarnalækni og félögum hans í fárinu mikla.

Vangavelturnar ganga einna helst út á hvort um sé að ræða einhvers konar geðveiki og/eða kvíða á stigi sem er handan greiningartækja þegar sturluð hugmynd um útgöngubann er sett fram vegna kvefpestar. En nýlega hefur komið i ljós að ómíkrónan er einna helst að valda aukningu á hori. Hún þykir því heldur óskæð kóróna í samanburði við aðrar kórónur.
 
Miðillinn spáir því jafnframt að nú fari fleiri og fleiri ofurskynsamir borgarar að bætast í hóp þeirra sem hætta að fara einkennalausir í endalaus próf í eins konar samfélagslegu átaki til að ljúka fárinu. Þá mun einungis standa eftir sú spurning hvort veita þurfi sóttvarnalækni og félögum aðhlynningu og meðferð við vitstolinu og áfallastreituröskunarröskun sem og tekjumissisröskunarröskun. Gróa á næsta leyti hvíslaði því að bróðursynir landlæknis væru í svona lyfjabisness og svo væru alls kyns stórar bónusgreiðslur til sumra stundaðar í fárinu. 

FréttaMiðillinn vill vara við klikkum á fréttir tengdar kórónuæðinu því það nærir aðra fréttamiðla í framsetningu og tekjuöflun af fárinu. 

EKKI KLIKKA!

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

FréttaMiðillinn

Höfundur

FréttaMiðillinn
FréttaMiðillinn

FréttaMiðillinn er einstaklega einlægur í nálgun sinni á satíru, grín og glens og tekur reglulega inn grínamín. Miðillinn fær hugmyndir og miðlar stöffi úr öllum áttum og gerir sér fulla grein fyrir stöðu sinni sem "fréttabloggari" samkvæmt rúvstöðlum og stælum og telur enga ástæðu til að flækja það neitt frekar. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband